Vörur

Fyrirtækið

Hafa Samband

Vörur

Fyrirtækið

Hafa Samband

Máltækniforritari (NLP)

Reykjavík / Fjarvinna

Fullt starf

Snjallgögn óska eftir að ráða úrræðagóðan NLP (e. Natural Language Processing) forritara til að hagnýta og sérsníða gervigreindarlíkön í viðskiptalegu samhengi. Í þessu hlutverki samþættir viðkomandi öflugar tæknilausnir til að sjálfvirknivæða úrlausn flókinna áskoranna.

Starfssvið

  • Hönnun og innleiðing NLP kerfa með nýjustu tækni, þar á meðal öflugar framleiðslulínur (e. production pipelines) og innleiðingarumhverfi í samvinnu við teymi forritara og gagnasérfræðinga.

  • Þróa frumgerðir lausna og þroska yfir í fullbúnar þjónustur, með  ábyrgð á bæði virkni og aðlögun forritaskila til að bæta gervigreindarlausnir.

  • Símat og bestun á virkni líkana og kerfa til að halda þeim í fremstu röð í hagnýtingu gervigreindar, máltækni og vélnáms.

Hæfnikröfur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða öðrum  verk og raunvísindagreinum. 

  • Hugmyndaauðgi við lausn vandamála, þekking á Python, og reynsla af lykilkerfum í heimi gagnavísinda/NLP eins og Pandas, Scikit-learn, og SpaCy. Brennandi áhugi á nýjustu þróun í gervigreind og málvísindum. 

  • Hagnýt reynsla af hugbúnaðarþróun, þar með talin vinna með SQL og Git, ásamt skilningi á máltækni og tækniumhverfi vélnáms.

  • Þekking á skýjaþjónustum eins og AWS og Azure, og helst færni í uppsetningu gagnaíláta í umhverfi á borð við Docker eða Kubernetes.

Launakjör

  • Samkeppnishæf laun sem taka mið af reynslu 

  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.

  • Sveigjanlegur vinnutími.

  • Skapandi, jafnvel nýskapandi, vinnuumhverfi.

Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda inn ferilskrá ásamt ítarlegri kynningu á hæfni sinni og reynslu sem þeir telja nýtast í starfi. Dæmi um fyrri verkefni eða framlag til tengdra verkefna eru einnig velkomin.

Sækja Um