
Gagnaforritari / gagnaverkfræðingur
Reykjavík / Fjarvinna
Fullt starf
Við leitum að úrræðagóðum gagnaforritara/gagnaverkfræðingi til að viðhalda og þróa nútímaleg gagnainnviði til rekstrar gervigreindarlíkana í viðskiptalegu samhengi.
Starfssvið
- Hönnun, viðhald og þróun á nútímalegum gagnainnviðum og gagnalíkönum. 
- Hönnun, rekstur og þróun á gagnapípum og vinnslum. 
- Náið samstarf við sérfræðinga í gagnavísindum, bakendaforritara og hagaðila gagna. 
- Eftirfylgni hágæða vinnubragða í meðhöndlun og öryggi gagna. 
Hæfnikröfur
- Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða í öðrum verk- og raunvísindagreinum. 
- Mikil þekking og reynsla í forritunarmálum og gagnatengdum tólum á borð við Python, Airflow og DBT. 
- Reynsla af gagnavinnslukerfum eins og Bytewax, grafagagnagrunnum eins og Neo4j og dálkahýstum kerfum eins og Clickhouse. 
- Reynsla af góðri högun og stjórnun gagnagrunna til að hámarka árangur og öryggi í rekstri. 
Launakjör
- Samkeppnishæf laun. 
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar. 
- Sveigjanlegur vinnutími. 
- Skapandi, jafnvel nýskapandi, vinnuumhverfi 
Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda inn ferilskrá ásamt ítarlegum upplýsingum um þá hæfni og reynslu sem þeir búa yfir og telja að nýtist í starfi. Þá væri tilvalið að láta fylgja upplýsingar um fyrri verkefni eða framlag til tengdra verkefna.