Lausnir

Fyrirtækið

Hafa Samband

Lausnir

Fyrirtækið

Hafa Samband

Lausnir

Fyrirtækið

Hafa Samband

Daddi Guðbersson

CCO

Mirka velur FraiOS til að hagnýta gervigreind í alþjóðlegum iðnrekstri

Í fyrsta fasa er FraiOS umhverfi Snjallgagna/Frontier Firm Technologies sett upp auk agentakerfa sem virkja djúpstæða sérþekkingu fyrirtækisins og spálíkana sem auka sölu og framlegð.

Tæplega 60 milljarða velta

Mirka þróar lausnir fyrir krefjandi framleiðsluumhverfi. Fyrirtækið þjónar meðal annars bíla-, sjávar-, byggingar- og framleiðsluiðnaði með tækni, verkfærum, rekstrarvörum og sérfræðiþekkingu sem eykur gæði, afköst og öryggi.

Mirka velti tæplega 60 milljörðum íslenskra króna árið 2025 og þar starfa rúmlega 1.800 manns. Fyrirtækið á uppruna sinn í Finnlandi en helmingur starfsfólks starfar í yfir 20 löndum vítt og breitt um heiminn.

Sérþekking virkjuð og afkoman bætt

Hluti verkefnisins snýr að agentakerfum sem gera innri sérþekkingu Mirka aðgengilegri þvert á teymi, hlutverk og markaði. Markmiðið er að nýta þekkingu betur í daglegum rekstri og draga úr hættu á að verðmæt reynsla tapist eða sé bundin við fáa einstaklinga.

Annar hluti snýr að næstu kynslóð spálíkana sem auka skilvirkni og hraða í samskiptum við viðskiptavini.

Ætlaður ávinningur er meðal annars:

• hraðari og markvissari verðákvarðanir

• betri eftirspurnarspár og framleiðsluáætlanir

• lægri hráefniskostnaður og minni sóun

• aukin sala og bætt framlegð

• betri nýting og varðveisla á sérþekkingu fyrirtækisins

• Styðja betur við viðskiptavimni í flóknum verkenfum

Lausnirnar byggja á staðlaðri tækni sem sniðin er að þörfum starfsemi Mirka og teknar eru í notkun í áföngum.

Víðfem þekking að rekstrarhæfum verkfærum

„Starfsfólk Mirka er í alþjóðlegum rekstri, með mikla sérþekkingu og þarf stöðugt að taka mikilvægar ákvarðanir sem hafa bein áhrif á sölu, kostnað, framlegð og vöxt. Þetta er það krefjandi umhverfi sem FraiOS er hannað fyrir. Markmiðið er frelsi starfsfólks til hagnýtingar á öllum sviðum í formi rekstrartækra lausna sem strax skila mælanlegu virði.“ segir Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Frontier Firm Technologies.

„Líkt og í öllum rekstri sjáum skýr tækifæri þar sem gervigreind gerir sérþekkingu okkar aðgengilegri og styrkir ákvarðanatöku þvert á starfsemina. Það sem er svo mest spennandi er hvernig við getum hagnýtt gervigreind til að stórauka getu okkar og færni sem eftirsóttra ráðgjafa á sviði framleiðslustýringar þar sem við leysum úr læðingi tækifæri til að auka framleiðni, koma jafnvægi á framleiðslugetu og besta ferla. FraiOS gefur okkur sameiginlegan grunn til að þróa og reka þessar lausnir á ábyrgan hátt,“ segir S. Melberg, VP Industrial Manufacturing –Mirka.

Alþjóðleg áskorun – íslenskt hugvit

Verkefnið staðfestir að vandamálin sem FraiOS leysir eru alþjóðleg. Starfsfólk er í auknum mæli að hjálpa sér sjálft og hefur til þess greiðari aðgang að sífellt öflugri gervigreind en skortir leiðir til að tengja hana með öruggum hætti við gögn, kerfi, sérþekkingu og ábyrgð.

FraiOS er sameiginlegur vettvangur fyrir smíði, hagnýtingu og rekstur gervigreindarlausna. Starfsfólk og agentar þróa verðmætar lausnir en á sama tíma heldur fyrirtækið stjórn á aðgangi, gögnum, kostnaði og framkvæmd.

Þetta er kjarninn í AI on Rails® hugmyndafræðinni sem opnar öllu starfsfólki leið til að tala sig í gegnum smíði rekstrartækra lausna sem strax skila ávinningi í rekstri sem þannig nær hraða gervigreindarinnar.

Um Snjallgögn og FraiOS

Snjallgögn er íslenskt tæknifyrirtæki sem hefur um árabil þróað og innleitt gervigreindar- og gagnalausnir fyrir fyrirtæki og opinbera aðila.

Frontier Firm Technologies er dótturfyrirtæki Snjallgagna. Félagið þróar FraiOS, nýja kynslóð rekstrarumhverfis gervigreindar, sem tekur sérstaklega mið af flóknum þörfum stærri fyrirtækja sem þurfa að koma sinni gervigreindarvegferð úr því að vera fálmkenndar tilraunir yfir í ábyrgan, mælanlegan tæknirekstur.

Sjá umfjöllun Viðskiptablaðsins

Nánari upplýsingar: fftech.ai