Lausnir

Fyrirtækið

Hafa Samband

Lausnir

Fyrirtækið

Hafa Samband

Lausnir

Fyrirtækið

Hafa Samband

Stefán Hrafn Hagalín

Samskiptaráðgjafi

Iceland Innovation Week 2025: Hispurslaus Snjallgögn í Húsi Máls og menningar

Snjallgögn halda opinn viðburð í Húsi Máls og menningar við Laugaveg, miðvikudaginn 14. maí kl. 14:00. Viðburðurinn er hluti af af Iceland Innovation Week 2025.

Stefán Baxter með hópi starfsfólks fyrirtækisins. Dr. Óli Páll Geirsson stendur vinstra megin við Stefán í grænum bol. Stefán og Óli Páll troða upp á nýsköpunarhátíðinni Iceland Innovation Week 2025.


Snjallgögn halda opinn viðburð í Húsi Máls og menningar við Laugaveg, miðvikudaginn 14. maí kl. 14:00. Viðburðurinn er hluti af af Iceland Innovation Week 2025, sem er árleg uppskeruveisla íslenskra sprotafyrirtækja. Á viðburðinum munu forsvarsmenn þessa fimmtán manna sprotafyrirtækis stíga á svið og deila reynslu sinni af þróun gervigreindarlausna á hispurslausan hátt með áherslu á hindranir og hrasanir.

Fyrir svörum verða þeir Stefán Baxter, stofnandi og forstjóri Snjallgagna, og Dr. Óli Páll Geirsson, meðstofnandi og yfirmaður gagnavísinda hjá fyrirtækinu. Stefán kveður þá félaga ætla að miðla lærdómi af viðburðaríkri vegferð sem hafi einkennst af krákustígum og útúrdúrum, enda sé ferðalag nýsköpunarfyrirtækja aldrei beinn og breiður vegur. Að sögn Stefáns verður öllum spurningum úr sval svarað og erfiðar spurningar eru sérstaklega velkomnar.

,,Við Óli eigum engin leyndarmál og ætlum á viðburðinum að veita innsýn í þau raunverulegu verkefni og áskoranir sem fylgja því að þróa hugbúnaðarlausnir sem byggja á gervigreind. Þetta verður opið og hreinskilið samtal um það sem hefur gengið upp og það sem hefur farið öðruvísi en áætlað var. Vonandi skemmtileg sögustund með nytsömum heilræðum, sem munu spanna allt frá fjármögnun, rekstri og tekjum til tæknilegra viðfangsefna og tungumálalíkana,” segir Stefán.

Að viðburði loknum verður boðið upp á léttar veitingar á skrifstofu Snjallgagna að Laugavegi 11, þar sem gestir fá tækifæri til að ræða málin áfram við teymið á óformlegum nótum.

Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn, en óskað er eftir skráningu gesta hérna.