


Ingi Freyr Atlason
Samskiptaráðgjafi
Helgi Páll er nýr tæknistjóri Snjallgagna
Helgi Páll Helgason hefur gengið til liðs við Snjallgögn sem tæknistjóri og meðstofnandi.
Helgi Páll Helgason hefur gengið til liðs við Snjallgögn sem tæknistjóri og meðstofnandi. Ráðningin kemur á mikilvægum tímapunkti í vegferð fyrirtækisins, nú þegar Snjallgögn eru að setja FraiOS í loftið og taka næsta skref í þróun gervigreindarlausna fyrir atvinnulífið.
Helgi Páll er margverðlaunaður sérfræðingur í gervigreind með doktorsgráðu í tölvunarfræði og áratuga reynslu af því að leiða afkastamikil teymi í atvinnulífinu. Hann hefur smíðað gervigreindarlausnir sem notaðar eru í ferðaþjónustu, mennta- og fjármálageira, þar á meðal snjallmenni og sérhæfð reiknirit.
Áður en Helgi Páll gekk til liðs við Snjallgögn starfaði hann meðal annars sem Head of AI hjá APRÓ og Travelshift. Þar áður var hann tæknistjóri hjá Activity Stream, þar sem hann gegndi einnig stöðu VP Operational Intelligence, og starfaði sem Director of Software Development hjá Verifone Iceland. Reynsla hans spannar því bæði hagnýta gervigreind, hugbúnaðarþróun, greiðslulausnir, rekstrargreind og uppbyggingu tækniteyma.
"Helgi Páll smellpassar inn í teymið okkar og er akkúrat réttur maður á réttum tíma, nú þegar við erum að setja FraiOS í loftið og taka þátt í þróun næstu kynslóða hagnýttra gervigreindarlausna. Hann kemur með djúpa tækniþekkingu og breiða reynslu að borðinu og skýran skilning á því hvernig gervigreind nýtist í raunverulegum rekstri fyrirtækja.Við erum ákaflega heppin að fá hann í hópinn“ segir Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Snjallgagna.
Sem tæknistjóri mun Helgi Páll leiða áframhaldandi vöru- og tækniþróun FraiOS og þá innviði sem gera fyrirtækjum kleift að innleiða gervigreind á markvissan, öruggan og hagnýtan hátt. Með komu hans styrkja Snjallgögn enn frekar tæknilega forystu sína á sviði hagnýtrar gervigreindar á Íslandi.
Hlekkur á frétt á mbl.is
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2026/05/27/helgi_pall_nyr_taeknistjori_snjallgagna