Solutions

The Company

Contact Us

Solutions

The Company

Contact Us

Solutions

The Company

Contact Us

Stefán Hrafn Hagalín

Samskiptaráðgjafi

Þrír fræknu: Gói, Stafræni ráðgjafinn og Kosmos

Þrjú íslensk snjallmenni sýna hvernig gervigreind er að færast úr einföldum spjalllausnum yfir í stafrænt starfsfólk.

Snjallgögn hafa á síðustu misserum þróað þrjú snjallmenni sem marka tímamót í hagnýtingu gervigreindar í íslensku atvinnulífi: Góa hjá Brimborg, Stafræna ráðgjafann hjá ELKO og Kosmos hjá Kosmos.

Þessi þrjú snjallmenni eiga það sameiginlegt að einfalda þjónustu, stytta leið viðskiptavina að svörum og gera vinnustöðum kleift að nýta gögn, kerfi og þekkingu með markvissum hætti.

Stafræni ráðgjafinn hjá ELKO hefur þegar vakið mikla athygli og hlaut nýverið viðurkenningu sem Gervigreind ársins á Íslensku vefverðlaununum 2026. Gói styður við stafræna þjónustu Brimborgar og hjálpar viðskiptavinum að rata hraðar að réttum upplýsingum. Kosmos er svo nýjasta og sennilega sjálfstæðasta snjallmennið í hópnum: gervigreindur framlínustarfsmaður nýja farsímafélagsins Kosmos.


„Við sjáum skýrt að snjallmenni eru að þróast úr því að vera einfaldar spjalllausnir og bottar yfir í raunverulegt stafrænt starfsfólk, sem getur unnið með kerfi, gögn og ferla fyrirtækja, fjallað um beiðnir og pantanir og afgreitt mál frá upphafi til enda. Gói, Stafræni ráðgjafinn og Kosmos sýna þrjár ólíkar útfærslur á sömu framtíðarsýn, sem snýst um betri þjónustu, einfaldari rekstur og meiri sjálfvirkni,“ segir Stefán Baxter, forstjóri Snjallgagna.

,,Kosmos gengur lengst af þessum þremur lausnum. Þar er snjallmennið ekki viðbót við hefðbundið þjónustulíkan heldur sjálfstæður framendi og frá upphafi eini framlínustarfsmaður fyrirtækisins. Kosmos getur þannig framkvæmt allt sem kerfi fyrirtækisins ráða við. Þetta er þróunin sem við trúum á og snjallmennin þrjú sýna að íslenskt atvinnulíf er þegar farið að nýta gervigreind með hagnýtum og mælanlegum hætti,“ bætir Stefán við.