


Ingi Freyr Atlason
CMO
FraiOS kynnt fyrir húsfylli í Gamla Austurbæ á Iceland Innovation Week
Við kynntum nýja íslenska lausn sem auðveldar fyrirtækjum nýtingu gervigreindar í daglegum rekstri
Við kynntum FraiOS fyrir húsfylli í Gamla Austurbæ á lokadegi Iceland Innovation Week, 30. apríl. Viðburðinum var gríðarlega vel tekið, en um 130 manns mættu á staðinn og fylgdust með kynningunni, auk þess sem um annað eins fylgdist með í beinni útsendingu.
FraiOS stendur fyrir Frontier AI Operating System og er nýr íslenskur hugbúnaður fyrir fyrirtæki sem vilja nýta gervigreind í daglegum rekstri með skýrari stýringu, betra samhengi og meiri rekjanleika.
Lausnin er hönnuð til að bregðast við þeim áskorunum sem mörg fyrirtæki hafa rekist á við innleiðingu gervigreindar. Þar ber helst að nefna skort á trausti, óljósar ákvarðanir gervigreindarkerfa og takmarkaðan skilning þeirra á rekstrarsamhengi fyrirtækja.
Við lítum á FraiOS sem nýja kynslóð hugbúnaðar. Kerfið getur aðlagað sig þörfum notenda og skrifað sig sjálft að hluta. Markmiðið er að notendur geti stýrt flóknum hugbúnaði með samtali, án þess að þurfa sjálfir að skilgreina öll tæknileg smáatriði.

Gervigreind sett á teina
Við lýsum FraiOS sem „gervigreind á teinum“. Með því er átt við að gervigreindin fái skýrt afmarkað starfsumhverfi, reglur og samhengi sem hún vinnur innan. Þannig er hægt að nýta hraða og sveigjanleika gervigreindarinnar án þess að hún fari út fyrir þau mörk sem fyrirtækið hefur skilgreint.
FraiOS er hannað til að vinna með rekstrargögn, skjöl, viðskiptareglur og spálíkön. Notendur geta meðal annars notað samtal við kerfið til að búa til mælaborð, greina gögn, byggja spálíkön og setja upp reglubók fyrir viðskiptareglur sem nýtist þvert á kerfið.

Traust, samhengi og rekjanleiki
Eitt helsta vandamálið við notkun gervigreindar í fyrirtækjum hefur verið að erfitt er að vita hversu öruggt er að treysta niðurstöðunum. FraiOS er byggt til að gera vinnu gervigreindarinnar sýnilegri, þannig að hægt sé að skoða hvaða gögnum, reglum og samhengi hún byggir á.
Það skiptir sérstaklega miklu máli þegar gervigreind er notuð til að vinna verkefni sem fagfólk þarf að geta rýnt, sannreynt og borið ábyrgð á. Með FraiOS viljum við gera fyrirtækjum kleift að nýta gervigreind á faglegri, rekjanlegri og öruggari hátt.

Dúndrandi viðtökur
Stefán Baxter, stofnandi og framkvæmdastjóri Snjallgagna, kynnti FraiOS á sviðinu og fór yfir hvernig lausnin setur gervigreind í skýrt rekstrarsamhengi fyrirtækja. Viðtökurnar voru frábærar og Stefán lauk máli sínu við dynjandi lófatak.
Fyrir okkur var viðburðurinn mikilvægur áfangi. Hann markaði formlega kynningu á FraiOS og gaf gestum innsýn í þá vegferð sem við teljum að muni móta næstu kynslóð hugbúnaðar fyrir fyrirtæki.
Næstu skref
Við vinnum nú að því að færa núverandi viðskiptavini inn í FraiOS. Fram undan er einnig sókn á erlenda markaði á þriðja ársfjórðungi 2026 og fyrsti erlendi viðskiptavinurinn byrjar að nota hugbúnaðinn í maí.
Við teljum að FraiOS geti orðið lykilkerfi fyrir fyrirtæki sem vilja hagnýta gervigreind rétt – með skýrum reglum, samhengi og rekjanleika frá fyrsta degi.
Þau sem misstu af kynningunni geta horft á upptökuna úr beinu útsendingunni hér, og við hvetjum áhugasöm til að heimsækja nýja vefinn okkar, www.FraiOS.com og skrá sig á póstlistann til að fylgjast með næstu skrefum FraiOS.