Solutions

The Company

Contact Us

Solutions

The Company

Contact Us

Solutions

The Company

Contact Us

Ingi Freyr Atlason

CMO

Stafræni ráðgjafi ELKO valinn gervigreind ársins

Stafræni ráðgjafinn, sem Snjallgögn þróuðu með ELKO, hlaut viðurkenningu sem gervigreind ársins á Íslensku vefverðlaununum.

Stafræni ráðgjafinn sem Snjallgögn þróuðu í samstarfi við ELKO hlaut viðurkenningu þann 26. mars síðastliðinn, sem gervigreind ársins á Íslensku vefverðlaununum. Verðlaunin voru veitt á 25. afhendingu Íslensku vefverðlaunanna í Hörpu, þar sem sextán veflausnir hlutu verðlaun.

Ráðgjafinn er hannaður til að auðvelda viðskiptavinum ELKO að finna réttar upplýsingar, bera saman lausnir og fá aðstoð við flóknari fyrirspurnir. Hann byggir svör sín á innri vöruupplýsingum ELKO og ytri gögnum, þannig að ráðgjöfin taki mið af raunverulegum þörfum og aðstæðum viðskiptavina.

Viðurkenningin er mikil hvatning fyrir teymið hjá Snjallgögnum og staðfesting á þeirri vegferð sem fyrirtækið hefur verið á: að smíða hagnýt gervigreindartól sem leysa raunveruleg verkefni á réttum stað í rekstrinum.

„Það er ofboðslega gaman að fá þessa ytri staðfestingu á því að við séum að smíða réttu gervigreindartólin. Stafræni ráðgjafinn hjá ELKO er gott dæmi um gervigreind sem gerir réttu hlutina á réttum stað, styður við starfsfólk, bætir þjónustu og hjálpar viðskiptavinum að taka upplýstari ákvarðanir,“ segir Ingi Freyr Atlason Markaðsstjóri Snjallgagna.

Snjallgögn þakka ELKO fyrir samstarfið og öllum sem komu að verkefninu fyrir framlagið. Fyrirtækið tekur viðurkenningunni fagnandi og heldur ótrautt áfram að þróa íslenskar gervigreindarlausnir fyrir fyrirtæki sem vilja nýta gögn, samhengi og gervigreind í daglegum rekstri.

Áhugasamri geta spjallað við hann hér:
https://elko.is/