Solutions

The Company

Contact Us

Solutions

The Company

Contact Us

Solutions

The Company

Contact Us

Stefán Hrafn Hagalín

Samskiptaráðgjafi

Kosmos nýtir gervigreind Snjallgagna

Hugbúnaðarhúsið Snjallgögn leggur nýstofnaða farsímafélaginu Kosmos til gervigreindarlausnir sem styðja við stafrænt þjónustulíkan félagsins.

Kosmos nýtir gervigreind Snjallgagna

Hugbúnaðarhúsið Snjallgögn leggur nýstofnaða farsímafélaginu Kosmos til gervigreindarlausnir sem styðja við stafrænt þjónustulíkan félagsins. Lausnir Snjallgagna gera Kosmos kleift að byggja starfsemi sína á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi. Snjallmenni Kosmos er þannig í rauninni eini framlínustarfsmaður fyrirtækisins og hefur mikla sjálfstæða virkni.

Ánægjulegt samstarf

,,Með því að nýta gervigreind með markvissum hætti í rekstrinum erum við að einfalda og bæta upplifun viðskiptavina, draga úr flækjustigi í afgreiðslu og bjóða hraðari og hagkvæmari þjónustu en samkeppnin. Snjallgögn er frumkvöðull hér á landi í þróun hagnýtra gervigreindarlausna og samstarf okkar hefur verið einstaklega ánægjulegt," segir Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos.

Einföld kerfi, lítil yfirbygging

„Gervigreind skilar mestum árangri þegar hún er ekki sett ofan á gamalt rekstrarlíkan heldur hugsuð sem grunnforsenda ferla, rekstrar og þjónustu frá upphafi. Það hefur verið mjög skemmtilegt verkefni að vinna að þróun lausna með teymi sem nálgast fjarskiptaþjónustu með þessum hætti. Einföld kerfi og lítil yfirbygging er það sem atvinnulífinu dreymir um,“ segir Stefán Baxter, forstjóri Snjallgagna.

Kosmos á bræður hjá Brimborg og ELKO

Að sögn Stefáns er snjallmennið í þjónustu Kosmos samnefndur fyrirtækinu, Kosmos, og í rauninni stóri bróðir þeirra snjallmenna sem Snjallgögn hafa áður þróað fyrir aðila á borð við Brimborg og ELKO, en þeir nefnast Gói og Stafræni ráðgjafinn. Stafræni ráðgjafinn sem Snjallgögn þróuðu í samstarfi við ELKO hlaut  viðurkenningu fyrir skemmstu sem ,,Gervigreind ársins” á Íslensku vefverðlaununum 2026.

Gervigreindur framlínustarfsmaður

Sverrir útskýrir málið nánar: ,,Hefðbundin snjallmenni læra að starfa fyrir vinnustaði sína, en Kosmos hefur frá upphafi verið eini framlínustarfsmaður fyrirtækisins. Hann hefur miklu meiri völd en hefðbundin snjallmenni. Í stað þess að leggja Kosmos ofan á veflausnirnar okkar, þá er hann sérstakur og sjálfstæður framendi rétt eins og vefurinn og appið. Kosmos getur með öðrum orðum framkvæmt allt sem kerfin okkar ráða við.”